Nafnið er Svava Björk Hjaltalín Jónsdóttir og arkitektúr hefur verið mín ástríða síðan á unglingsaldri
Ég brenn fyrir að hanna rými fyrir þig.
Að vera einstakling innan handar að skapa rými sem heldur utan um verkefnið. Hvort sem að það er heimili, griðarstaður í náttúrunni, vinnustaður, þjónusta, gistiþjónusta eða hver sem draumurinn er.
Rými sem heldur utan um manneskjuna er mín ástríða og að skapa vellíðan.
Ég hef starfað sem arkitekt síðan 1999. Er með diploma í architechture and well being og masters gráðu frá Edinburgh College of art.
Einnig hef ég diploma í jákvæðri sálfræði og er útskrifaður markþjálfi og yogakennari. Þessi þekking hefur nýst mér ólýsanlega vel í samtalinu við verkkaupa. Að hanna og byggja er verkefni lífsins í huga margra og það þarf að vera hægt að halda vel utan um alla sem að koma.
Alhliða arkitekta og hönnunarþjónusta ásamt ráðgjöf. Reynsla og þekking í fyrirrúmi



